Um JITR

Byggt á reynslu úr vaktavinnu.

Áður en JITR varð til vorum við á kvöld- og næturvöktum í móttöku, að sjá inn- og útskráningar, að sjá um uppgjör dagsins, og að leysa vandamál, meðan flestir sváfu.

Við höfum unnið á mismunandi stöðum í stórum hótelkeðjum og líka í litlum teymum og sáum við hvernig jafnvel ein fjarvera getur sett raunverulega pressu á starfsemina.

Sitthvor skalinn. Sama vandamál.

Við lifðum næturvaktirnar

Áður en JITR varð til sinntum við móttöku, þörfum gesta yfir næturnar, og lukum þeim verkum sem fylgu því að gera upp daginn.

Við sáum falda kostnaðinn

Vöntun á starfsfólki hefur ekki alltaf augljós áhrif. Það saxar á frídaga, dregur úr orku, og þjónustugæði lækka smátt og smátt.

Samviskubitið nagaði

Við fengum “gætirðu tekið vaktina?” símtalið á frídögum, og sáum stjórnendur eyða klukkutímum í að reyna að finna einhvern.

Við lærðum snemma að mönnunarvandamál springa ekki alltaf. Þau læðast að manni og koma niður á öllum sem eiga í hlut.

Í stærri fyrirtækjum stígur venjulega einhver inn. Vaktstjóri tekur vakt, frídagur einhvers hverfur, fólk teygir sig lengra en ætlað var. Þjónustan heldur áfram en kostnaðurinn hleðst upp.

Í smærri rekstri er oft ekkert skjól. Þegar einhver mætir ekki eru það eigandinn eða stjórnandinn þarf að stíga inn, aflýsa plönum, eða kalla in greiða.

Við höfum verið þeir sem fá skilaboðin á frídögum, alltaf kurteis, alltaf „valkvæð“, en samt var maður með samviskubit þegar maður svaraði ekki, eða gat ekki tekið vaktina. Við höfum líka verið í kringum fólkið sem þarf að hringja þessi símtöl, fylgjast með þeim eyða klukkitímum í að heyra í fólki, í von um að einhver geti komið í tæka tíð.

Ekki vegna þess að einhver gerði eitthvað rangt, heldur vegna þess að betri verkfæri voru ekki til.

Einn daginn hættum við að sætta okkur við að „svona sé vaktavinna“.

JITR byrjaði sem samtal tveggja einstaklinga sem þekktu vandann: annar kom úr tækniheiminum, hinn úr rekstri og gistiþjónustu. Við vorum ekki að reyna að bylta heilli atvinnugrein, heldur fjarlægja óþarfna núning.

Hugmyndin var einföld:

Vaktirnar eru til. Fólkið er til. Traustið er til.

Það sem vantar er sýnileiki, samþykki og rétt tímasetning.

SýnileikiSamþykkiTímasetning

JITR kemur í stað símtala á síðustu stundu og sektarkendar, með skýru, valkvæðu kerfi. Fyrirtæki sjá hver er laus og til í vaktina, og velja réttan aðila án þess að eyða tíma í símtöl og bið.

Starfsfólk getur tekið aukavaktir þegar þeim hentar, án þrýstings, útskýringa og án þess að missa stjórn á frítímanum sínum.

Sanngjörn laun, skýrar væntingar og sveigjanleiki, þetta eru grunnviðmiðin okkar. Þegar fólk ræður tíma sínum eykst áreiðanleiki. Þegar fyrirtæki hafa skýrleika verður starfsemin einfaldari.

Annasöm helgi, óvænt forföll, árstíðasveiflur, lítil teymi og stór. JITR virkar hvort sem það þarf að dekka eina vakt eða til tryggja nægan mannskap fyrir álagstímabil.

Starfsmönnun á að aðalaga sig að raunveruleikanum, ekki öfugt. Að fjarlægja ágiskun og koma í stað stressins sem fylgir förföllum með skýru fyrirkomulagi veitir fyrirtækjum styrk og gerir fólki kleyft að halda stjórninni.

JITR er til svo rétta fólkið nái saman á réttum tíma, án streitu, sektarkendar eða tímaeyðslu.

Einfalt. Sanngjarnt. Mannlegt.

Það er JITR.

Um JITR | JITR | JITR